Dansing in the moonlight
18.07.2006 00:06:16 / hilja

Ákvað að prófa nýtt

Ákvað að herma eftir Gunnhildi og prófa nýtt bloggkerfi.

www.hilja.bloggar.is

:D Sjáumst hress þar :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 22:41:00 / hilja

Verið svolítið löt undanfarið ... sorry

Hæ hæ og sorry hve löt ég hef verið að skrifa.

En já, ég og Ína fórum til Benidorm og það var bara æðislegt að komast í sólina. Þetta var reyndar aðeins og mikil áfengisdrykkja fyrir mig, enda er ég enn að jafna mig. Við gerðum samt eitthvað úr dögunum og kíktum meðal annars á ströndina, í safari og í dýragarð ... og ég fékk til dæmis að sjá tígrisdýr, fíla og úlfalda að gera do-do, hehehe, náði meira að segja mynd af því :P Þó að þetta hafi verið mjög fínt ferðalag var ég ósköp fegin því að komast heim til Bjössa. Ég er nú að fara að leggja aftur land undir fót í ágúst ... en þá tek ég hann Bjössa sko með mér út ... ætla ekki að gera þau mistök aftur að skilja hann eftir heima. ;)

Ég varð kvefuð um leið og ég steig út úr flugvélinni ... helvítis kuldinn hérna. Og ég hef ekki losnað við hann síðan. Að auki bættist hósti við. En ég er svoddan hörkukelling að ég harka þetta af mér. :P

Ég er búin að borga skólann, eða reyndar borgaði pabbi skólann fyrir mig, styrkja stelpuna sína :haha: Takk æðislega fyrir það, pabbi minn :) Alltaf gott að eiga pabba sem stendur alltaf við bakið á manni. :D Skólinn byrjar 4. september. Bæði hlakka til og kvíð fyrir. Hlakka til að troða nefinu aftur ofan í bækur og kvíð fyrir því að þetta er svo stórt og nýtt...þið fattið mig.

Síðan er ég að fara að hætta á Café Bleu, á sex vinnudaga eftir, seinasti dagurinn minn þar verður 23. júlí ... og ég get ekki beðið eftir að hætta þarna, verð nú að segja að þetta er leiðinlegasti vinnustaður sem ég hef unnið á, of mikið stress og yfirmennirnir ... huhhum ... já tölum ekki einu sinni um þá :$

En hey, það var góð mynd að byrja á Sirkus, ætla að fara að horfa á hana ... lofa að reyna að vera duglegri við þetta ... meira að segja Bjössi var farinn að skamma mig ... og því er nú yfirleitt öfugt farið... :P

Kv. Hilja


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 23:50:34 / hilja

Æðisleg helgi

Vá, þetta var æðisleg helgi. Á föstudagskvöldið fórum ég og Bjössi út að borða með vinnunni minni á Hornið. Það var geðveikt gaman þar, virkilega góður matur, gott vín og bara allt æðislegt. Það var rosalega góður fílingur í öllum. Þegar Hornið lokaði vildu Einína og Carla óðar fara inn á Óðal og þangað skelltum við okkur öll sömul. Þetta var mjög spes lífsreynsla, hehehe. Get ekki sagt að mér finnist mikið koma til strippsins,  mér finnst þetta samt ekkert ósiðsamlegt ... þetta er víst atvinna eins og hvert annað ... ég mun nú líklega aldrei vinna við þetta samt, hehehehe :P

Á laugardaginn byrjuðum ég og Bjössi á því að kíkja í afmæli til Hafþórs Rúnars, bróðir minn var að verða sjö ára, orðin stór strákur ... of stór. Hann er litli bróðir minn og hann á bara að vera það áfram. :haha: You know what I mean. Síðan rétt fyrir tvö skelltum við okkur á 17. júní hátíðina í Kópavogi til að sjá Andreu sem fjallkonuna. :D Hún var rosa flott. Svo spottuðum við Eið Smára og ég náði að plata hann til að láta taka mynd af sér með Andreu, rosa flott mynd :haha: Síðan kíktum við öll á American Style upp á Höfða, rosa flottur staður. Eftir fína máltíð þar þurftum við Bjössi að fara að koma okkur því að hann var að fara á landsleikinn í handbolta með systur sinni og ég ætlaði að passa dóttur hennar á meðan og undirbúa afmælisveisluna. Ég verð nú að segja að ég hefði alveg verið til í að hafa farið á leikinn, ég horfði á hann í sjónvarpinu og fannst hann geggjað spennandi. Síðan var komið að afmælinu. Fjölskyldan hans Bjössa gaf mér blandara, takk æðislega fyrir það, kemur að góðum notum. Ég fékk líka fullt af góðum gjöfum og vil ég þakka öllum fyrir. Takk líka fyrir komuna, það var æðislegt að fá ykkur. Eftir gott partý kíktum við niður í bæ þar sem var góð stemmning.

Í dag vorum við svo bara að letingjast, ég var reyndar pínu slöpp en það lagaðist. Ég kíkti svo á kaffihús í kvöld með Hörpu sem var virkilega fínt.

Ég veit ekki hvað ég á að segja meir í bili ... skrifa bara meira seinna.
   Kv. Hilja


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 14:31:40 / hilja

Return of the blondie

Hmmm .... gerði svoldið í dag ... I'm blonde again ... :P Bjössa örugglega til mikillar ánægju ... svo og Dísu Björk og mömmu, hehe.

En já, 17. júní á morgun, margt að gerast, Andrea fjallkonan, bróðir minn á afmæli og ég ætla að halda upp á mitt ... sjáumst hress þá :haha:

Ég skrifa meira seinna, þarf að fara að versla í partý :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 09:50:59 / hilja

VIKA

Djís ... akkúrat vika í það að ég verð tvítug :D og svo eru 9 dagar í Benidorm :haha: Næsta vika verður semsagt æði ;) Það verður samt svoldið skrítið að vera án Bjössa í viku ... þar sem að við erum búin að vera saman alla daga síðan í febrúar. It's gonna be a change.

Svo er það afmælið næstu helgi ... partýið byrjar kl. 20:00 og verður fram á rauða nótt, svo verður auðvitað kíkt í bæinn :D Ég er alltaf jafn stolt núna yfir því að komast inn á mínum skilríkjum ;) Ef þið vitið ekki alveg hvar ég er til húsa þá skulið þið bara bjalla á mig ... vil ekki setja heimilisfangið mitt inn á netið hérna ...

Síðan er árshátíð hjá mér í vinnunni næsta föstudag ... það verður sérstakt stuð :$ en ég er að fara að hætta þar í næsta mánuði ...

Ég ætla að drulla mér í sund ... geggjað veður úti ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 22:40:07 / hilja

Sannsögul spá yfir 2005

Jæja ... ætlaði að vera fyrir löngu búin að skrifa eitthvað en ég fer alltaf að eyða tímanum mínum í eitthvað allt annað. Um helgina fórum ég og Bjössi í brúðkaup hjá Lindu og Atla. Linda var ekkert smá falleg brúður. Eftir giftinguna var haldin veisla í hlöðunni heima í Laxárdal, geggjað stuð, góður matur, brjálað flottur bar, sumir drukknir (huhumm, segi nú engin nöfn, hehehehehe). Daginn eftir fórum við svo í fermingarveislu (brjálað að gera hjá okkur).
    Á mánudaginn ákváðum við svo að fara á hestbak fram í búð og versla hráefni í pylsupottrétt sem ég ætlaði að elda fyrir mannskapinn heima. Við sigum svo í átt að Reykjavík rétt eftir matinn. Bjössi fékk svo einhverja skemmtilega hugmynd um að keyra upp á Úlfarsfell. Þetta var engin smá torfæra á köflum. Bjössi skemmti sér konunglega allan tíman en ég var að skíta í brækurnar af og til. En þegar við vorum komin niður aftur og ég búin að jafna mig eftir þessa lífsreynslu að þá fannst mér þetta bara gaman .... en við erum nú samt ekki að fara þangað upp á næstunni ... hehehe

 

 

Ég var að lesa einhverja færslu frá gamla blogginu okkar Gunnhildar fyrir Bjössa ... var að sýna honum að maður þyrfti ekki endilega að skrifa eitthvað af viti í þessum færslum (hann er sjálfur með blogg sem gengur kannski ekki sem vera skyldi, :P ) En já, þessi færsla verð gerð í byrjun árs 2005 og það stóð : Jæja, þá er árið 2005 gengið í garð og samkvæmt stjörnuspá minni þetta árið (ég er Hildur Lilja) að þá á ég eftir að verða virkilega ástfangin af einhverjum þetta árið. Mér finnst þetta bara geðveikt fyndið. Þremur mánuðum eftir þessa færslu hitti ég svo Bjössa í fyrsta skipti og mánuði þar á eftir var ég fallin kolflöt fyrir honum. 14 mánuðum seinna vorum við svo flutt inn saman. Mér finnst þetta svo fyndið ... furðuleg stjörnuspá :P

 

 En ég ætla að kveðja í bili ... heyrumst,  kv. Hilja.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 13:41:29 / hilja

Call me docter Jones

Jæja ... loksins hef ég tíma til að drita einhverju niður hérna. Ég var að vinna af mér rassinn seinustu helgi en samt kíktum við Bjössi í útskriftarveislu hjá Andreu. Hún var að útskrifast frá MK og stóð sig framúrskarandi vel, fékk alveg fullt af verðlaunum og öllu saman, bara geðveikt stolt af henni :haha: Til hamingju enn og aftur elskan mín ;) Síðan á laugardagskvöldið fórum við í afmælispartý hjá Fríðu, vinkonu Bjössa, hún var að verða 23 ára. Eftir þá veislu kíktum við í aðra útskriftarveislu ... brjálað mikið að gera hjá okkur. Svo næstu helgi erum við að fara í brúðkaup á laugardaginn og á sunnudaginn er það ferming ... ÚFF ... maður verður bara dauður ... það verða komnar margar vikur í röð með partýum og djammi. Síðan fáum við eina helgi í frí og helgin þar á eftir að þá ætla ég að halda upp á afmælið mitt, eins og kom fram seinast ... og svo helgina þar á eftir er það Benidorm. :haha: Fun Fun Fun.

Í gær var ég í fríi (Bjössi að vinna). Ég kláraði að sauma gardínu fyrir hurðina svo að maður er ekki lengur á open display hérna. Síðan þegar það var búið fór ég og hitti Hörpu. Hún kíkti með mér í Háskólann (ég þurfti að skila inn einkunnum). Síðan fór ég með henni að skoða fataskápa .... hún er nefnilega flutt í bæinn (loksins loksins).  Um kvöldið eldaði ég svo einhvern grænmetisrétt sem vantaði smá krydd í ... Bjössi kíkti á fótboltaleik, ÍA vs. Valur. Valur vann ÍA 2-1 ... Bjössi hefði viljað að það hefði farið öfugt. Á meðan var ég heima og horfði á Brokeback Mountain ... sem olli mér svolitlum vonbrigðum. Þegar Bjössi kom heim horfðum við á Indiana Jones og skelltum okkur svo í rúmið ... Ég er farin að elska Indiana Jones myndirnar :D

Kveð að sinni ...
   kv. Hilja


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 14:10:44 / hilja

Rippsý dyppsí dú

Ég ætlaði að vera fyrir löngu búin að skrifa færslu ... en svo einhvern vegin dróst það alltaf á eftir. But here goes ...

Ég er ekkert smá ánægð með að Finnarnir unnu eurovision :haha: Ég og Bjössi héldum eurovision-/innflutningspartý og það var brjálað stuð. Allir skemmtu sér alveg konunglega...auðvitað voru sumir aðeins of drukknir (bara eins og gengur og gerist) en við enduðum með því að hringja á lögregluna og láta hana keyra hana heim. Daginn eftir var Bjössi búinn að taka allt til og draga út svefnsófann svo að þegar ég myndi vakna gæti ég skriðið upp í hann og horft á sjónvarpið. Við vorum samt svo góð á því að fá okkur hrygg, franskar og bernaise sósu í hádegismat :D Brjálað gott ... Síðan lágum við bara í þynnkunni okkar allan sunnudaginn :)

Síðustu tvo daga hef ég bara verið að vinna ... frændi hans Bjössa, Steinþór, gisti hjá okkur seinustu nótt ... hann var á leið til Mexíkó ... en það er nú ekki svo langt þangað til að ég fer af landi brott (um þrjár vikur) en þá verðum ég og Ína komin til Benidorm í sólina og hitann .... en ATH ég verð orðin tvítug eftir þrjár vikur :D Jabbadabbadú. Ég ætla að halda upp á afmælið mitt helgina 17. júni ... svo að allir verða að taka frá þá helgi ... for the big partý :D

En hey ... ég verð að fara - ætla að fara í háskólann og sækja um þar ;) See ya :)
   Kv. Hilja


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 22:46:15 / hilja

Úpsí dúps

Obbosý .... þetta var ekki alveg að gera sig hjá Silvíu greyinu :S Ég trúði bara ekki eigin augum. Mér fannst þetta falskt (greinilega búin á því) og svo voru þessir voða hot spanjólar látnir líta út eins og hálfvitar þannig að þetta var eins og eitthvað lélegt grín. Ég gat varla horft á þetta og mér þykir leitt að segja þetta en ég skil hundrað prósent að hún hafi ekki komist áfram. En finnska lagið komst áfram, lagið sem ég og Bjössi höldum með.

Það eru fimm vikur í það að ég og Ína skellum okkur til Benidorm í djamm og sól ... híhíhí, get ekki beðið. Verður reyndar svoldið skrítið að vera án Bjössa í viku en ég redda mér. Vikan verður bara fjör út í eitt ... craaaaazzzzzyyyyyy . :haha:  Síðan var ég að skoða síðuna hjá Sólon og haldið þið ekki að ég hafi fundið mynd af mér þar ... og það viðbjóðslega mynd, ég lít út eins og gíraffa-api or something :$

En hey....ætla að fara að sækja Bjössa í pool ... see ya .


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 19:52:08 / hilja

Fjörugt laugardagskvöld

Jebbs ... laugardagskvöldið var fjörugt. Ég kíkti í partý í heimahúsi hjá nokkrum af vinum hennar Gunnhildar. Þar voru nokkrir bjórar drukknir, spjallað og hlegið. Síðan hafði Stefanía samband við okkur og ég og Gunnhildur skelltum okkur til hennar til að ganga með henni í bæinn. Síðan þegar við vorum komnar niður í bæ að þá kallaði pissuþörfin á okkur Stefaníu og þar af leiðandi var gengið á bak við ráðhúsið og látið flakka. :P hehehe....Síðan skildi Gunnhildur við okkur og fór á Hverfisbarinn (á eftir stráki), ég og Stefanía biðum aðeins eftir að Ína og vinkonur hennar kæmu. Síðan var gengið niður í bæinn, þar hittum við Bjarneyju og Lindu (sem var verið að gæsa ... er að fara að gifta sig 3. júní nk. ;) ... gaman gaman gaman. Síðan eftir kossaflens þar og hróp að þá ætluðum við á Glaumbar, að ég held, veit samt ekki alveg ... hehe ... síðan missti ég einhvern vegin af hópnum og fyrir algjöra tilviljun hitti ég Söndru, Birgittu, Andreu og Dísu niðri í bæ. Með þeim fór ég á Sólon og var þar í einhvern klukkutíma, eða tvo. Síðan drullaði ég mér heim, þar sem að ég var að fara að vinna daginn eftir ... vinnuhelgi hjá mér :haha: Ég vaknaði reyndar skítþunn í morgun og var sko ekki tilbúin til að fara í vinnu ... en ég kom mér á lappir og tók strætó í vinnu ...

Núna er ég að bíða eftir að Bjössi komi heim. Hann er búinn að vera á Akureyri yfir helgina ... amma hans var að halda upp á afmælið sitt. Ég vildi að ég hefði komist með .... búin að sakna hans hræðilega. Hann ætti að fara að koma á hverri stundu núna ... og með subbara handa mér, ég er orðin brjálað svöng, nenni ekki að elda neitt, ég er allt of uppgefin :$

En hey ... ég ætla að fara að gera eitthvað ... sem er líklega bara það að horfa á Animal Planet ... uppáhaldsstöðin mín þessa dagana.

Takk æðislega fyrir helgina allir saman ... sjáumst hress og kát sem fyrst ;)

Kv. Hilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 20:25:32 / hilja

híhí...nokkrir dagar

Seinasta helgi var yndisleg. Ég og Bjössi fengum systur mínar yfir helgina. Elísabet fór reyndar á laugardaginn. Ég fór með þær á Chicken Little og við vorum einar í salnum. Það var hin fínasta mynd :D Svo þegar Beta var farin til frænku sinnar fór ég með Dísu í Nauthólsvík, leyfði henni að dýfa tánni ofan í sjóinn :haha: Síðan sóttum við Bjössa í vinnuna og fórum að gefa öndunum brauð, þær voru samt ekkert spes skemmtilegar, allar saddar og leiðinlegar. Þannig að við fórum upp í Perlu og skoðuðum útsýnið, Dísa græddi þar tvær blöðrur. Þar á eftir fórum við og fengum okkur ís í bestu ísbúðinni in da town :P og tókum rúnt um Rvk. Eftir það fórum við heim og ég eldaði þennan dýrindis kjúkling. Ég og Bjössi drukkum hvítvín með. Það slakaði svo á okkur að við vorum orðin þreytt skammarlega snemma og það á laugardagskvöldi. Við vorum farin að sofa klukkan tíu og Dísa Björk var svo ánægð með að fá að fara að sofa á sama tíma, hehehe. Á sunnudaginn lá svo leiðin austur fyrir fjall, þar sem að ég og Bjössi áttum deit í fermingu. Skammarlegt að fara í fermingu í því góða veðri sem var á sunnudaginn. Til að gera langa sögu stutta um sunnudaginn að þá var sunnudagurinn svona : sofa, sitja, borða, sofa, borða, sitja, göngutúr og svo sofa aftur. Hehe, skemmtilega tilbreytingalítill sunnudagur. Síðan tók vinnan bara við. Á morgun er ég reyndar í fríi og get ekki beðið.

Síðan verð ég að koma því að að vinkona mín, Charlotta, eignaðist lítinn, sætan og heilbrigðan strák 30. apríl :!: Enn og aftur óska ég henni og Andra til hamingju með Lilla litla :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 10:10:32 / hilja

Vúps ..

Ég fór ekki alveg eftir því sem ég sagði, það eru víst komnir tveir dagar síðan :P Það hefur samt í raun ekkert mikið gerst.

Verð nú samt að monta mig á því að systir mín, Elísabet, varð í þriðja sæti í firmakeppninni (á mínum hesti, hohohoho). Ég er geðveikt stolt af systur minni, hún er glæsileg. Systur mínar eru svo að koma til mín á föstudaginn, hlakka til að fá þær. Við gerum örugglega eitthvað skemmtilegt :haha: . Fara í bíó, skauta eða eitthvað álíka. Það verður stuð hjá okkur.

Svo er America's Next Top Model í kvöld ... SHIBBÝ !!! Get ekki beðið eftir að sjá þáttinn. Loksins er hann kominn aftur, það er of langt síðan hann var seinast :( En, til allrar hamingju að þá er þátturinn kominn aftur á skjáinn. Svo að enginn má trufla mig milli níu og tíu. :P

En hey, ég verð að fara að vinna ;) Heyrumst, kv. Hilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 20:43:08 / hilja

Hugsi hugs ... ekkert kemur :S

Jæja ... ég er að reyna að vera dugleg að þessu :D Það er kannski að virka, ég veit ekki. Ég er reyndar að deyja úr þreytu núna ... ég er búin að vera að vinna alla helgina og það var brjálað að gera á laugardaginn. Svo sótti ég Bjössa niður í bæ um tvö leytið svo að svefninn minn raskaðist svolítið :$ og núna er ég alveg að leka niður. Ég er geðveikt fegin því að vera í fríi á morgun. Ég er reyndar að fara að hjálpa Bjarna með ritgerð á morgun, sjáum hvernig það fer :$ Svo er líka idol kvöld stelpnanna á morgun ... can't wait. Borða fullt af sætindum og gúdderíi. Skilja karlinn eftir heima og svolleiðis :P

En jesús, ég er algjörlega tóm í hausnum ... er of þreytt fyrir þetta núna. Drita kannski einhverju niður á morgun, sjáum til.

Kv. Hilja 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 00:58:31 / hilja

Ég er á lífi ... :)

Ohhh ... ég var svo heimsk að loka glugganum og ég var eiginlega búin með helvítis færsluna  !  En já ... við erum komin með netið ... Halelujah. Nú líður mér loksins vel :D

En já, við erum eiginlega búin að koma okkur alveg fyrir ... allavega er svefnherbergið alveg tilbúið. Geðveikur spegill fyrir mig :D Ég fékk að velja hann, geggjað flottur og stór svo að ég geti skoðað mig í bak og fyrir. Unnur og Halli gáfu okkur líka tvo rosa flotta skápa og svo örbylgjuofn seinna meir og það munaði geðveikt miklu fyrir okkur, svo að takk æðislega fyrir þá, enn og aftur.... Svo er stofan alveg að verða tilbúin. Þetta er allt að koma. Bjössi er búinn að vera rosa duglegur að setja upp hluti, eins og hátalarana í dag. Ég setti reyndar saman einhverjar hillur sem reyndu satt að segja svoldið á þolinmæði mína og fékk ein hillan að kenna á því svo að á sést :$ En ojæja ... ég stillti henni þannig upp að ofbeldismerkin sjást ekki :P

Ég og Bjössi viljum líka koma því á framfæri að okkur finnst finnska lagið vera brjálað flott lag, liggur við mun betra heldur en íslenska lagið. Hard Rock Hallelujah. Endilega kíkið á það : http://212.30.217.117/eurovision  ... eða farið á eurovision.is ... þá getið þið reyndar séð öll lögin....geðveikt flott lag !!!

En hey, klukkan er orðin svoldið margt og ég er að fara að vinna á morgun ... gaman gaman gaman....gaman saman. Bjössi biður að heilsa ykkur öllum. Og innilega fyrirgefið hvað ég skrifa seint...vonandi fyrirgefið þið mér :haha:

Bless í bili, kv. Hilja


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 11:08:22 / hilja

Allt næstum reddí

Jæja, þá er vikan eiginlega búin og stelpurassgatið tekur upp á því að blogga. ;) Við erum búin að mála íbúðina og sófinn kominn inn, rúmið og svona ágætlega góðar nauðsynjar. Förum vonandi að fá eldhúsborðið bráðum ... líklega eftir helgi. Þá getir fólk farið að koma í heimsókn :D Gaman gaman.

Hugga og Óðinn kíktu til okkar í gærkvöldi, fyrsta heimsóknin :haha: Hugga hjálpaði Bjössa að mála svefnherbergið og Halli og Unnur hjálpuðu okkur að mála stofuna, takk æðislega fyrir hjálpina elskurnar mínar! En djöfull er maður ekki að nenna að fara í vinnuna ... við lokum ekki fyrr en klukkan tíu í kvöld ... og mig langar bara til að sitja í nýja sófanum mínum heima ... :$

En annars ... Blíðskaparveður úti í dag ... allir að drulla sér út, einn tveir og tíu.


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11